9 Júlí 2007 12:00

Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar eldsvoðann sem varð þann 20. febrúar sl. í iðnaðarhúsnæði að Litlu Eyri á Bíldudal sem íkveikju.  Eins og fram kom í fréttum af eldsvoðanum  varð eldsins vart skömmu fyrir hádegi þann sama dag og brann tæplega 600 fermetra iðnaðarhúsnæði til grunna.  Vettvangsrannsókn lögreglunnar hefur leitt í ljós að eldur hafði verið borinn að húsnæðinu.