31 Mars 2014 12:00

Slökkvilið, sjúkralið og lögregla eru á Eyrarbakka vegna elds sem kom upp í íbúðarhúsi þar rétt fyrir klukkan ellufu í dag.  Talsverður reykur var innandyra.  Búið er að slökkva eldinn og verið að reykræsta húsið sem var mannlaust þegar eldurinn kom upp.  Við fyrstu sýn er talið að eldurinn hafi kviknað út frá þvottavél.  Rannsókn hefst um leið og fært verður inn í húsið.