3 Maí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á. Minnt er á að neglda hjólbarða má ekki nota á tímabilinu 15. apríl til 31. október nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna en ekkert slíkt á við á höfuðborgarsvæðinu. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk, og raunar sömuleiðis fyrir hvern óhæfan hjólbarða eins og það er orðað í reglugerð um sektir vegna brota á umferðarlögum, og því betra að taka þau undan hið snarasta. Þeir sem ekki bregðast við eiga sekt yfir höfði sér því lögreglan mun fylgja málinu eftir. Hún vonar þó að ökumenn kippi þessu strax í lag.