9 Október 2021 12:30

Enn mælist hreyfing á hrygg í hlíðinni á Seyðisfirði milli skriðusársins frá desember 2020 og Búðarár. Hryggurinn er talsvert sprunginn og því ekki ólíklegt að hann fari niður í smærri brotum fremur en allur í einu.

Unnið er að útreikningum á því hvort leiðigarðar og safnþró taki við því efni sem óstöðugt er í hlíðinni, jafnvel þó það fari allt í einu. Niðurstaðan ætti að liggja fyrir strax eftir helgi. Ákvörðun um afléttingu rýmingar verður þá tekin.

Engar aðrar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar.

Vatnshæð er hætt að hækka í flestum borholum eftir rigninguna á fimmtudag og tekin að lækka í sumum þeirra. Gert er ráð fyrir lítilsháttar úrkomu í dag með uppstyttu í nótt. Ekki er gert ráð fyrir úrkomu að nýju á Seyðisfirði fyrr en á miðvikudag.

Herðubreið verður opin í dag og á morgun frá klukkan 14 til 16 líkt og verið hefur. Öll velkomin.

Ekki er gert ráð fyrir að íbúar geti snúið til síns heima fyrr en eftir helgi. Öll óviðkomandi umferð um skriðusvæðið er óheimil.

Minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.