20 Desember 2020 12:51

Enn er unnið að mælingum á Oddskarðsvegi og staðan metin síðar í dag. Rýming stendur því enn. Gera má ráð fyrir að niðurstöður mælinga liggi fyrir um klukkan fimm í dag og standa þá vonir til að rýmingu megi aflétta að hluta eða öllu leyti.

Næsta tilkynning verður send um klukkan 15. Fjöldahjálparstöð í Eskifjarðarkirkju að Dalbraut 2 er opin í dag.