20 Apríl 2012 12:00

Hjón á áttræðisaldri týndu umslagi sem í voru 3000 evrur mest í 200 evru seðlum síðdegis á miðvikudaginn var.  Hjónin fóru í Íslandsbanka á Selfossi á milli kl. 14 og 16 á miðvikudag þar sem þau tóku út gjaldeyrinn til að nota í utanlandsferð sem þau voru á leið í.  Þegar þau voru að búa sig til ferðarinnar í gær fundu þau ekki umslagið með gjaldeyrinum.  Hugsanlegt er að umslagið hafi glatast á Selfossi eða í Hveragerði.  Lögreglan biður fólk að hafa augun hjá sér á þessum tilgreindu stöðum og líta eftir umslagi sem hugsanlega gæti legið í götunni, í görðum eða annars staðar og hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010 finnist umslagið með evrunum.