15 Janúar 2014 12:00

Samkvæmt tölum lögreglu varð að meðaltali eitt umferðarslys á dag á höfuðborgarsvæðinu árið 2013 þar sem meiðsl urðu á vegfarendum. Telja þau samtals 370 og fjölgar um tæplega 9% frá árinu á undan. Í ljósi þess að slík óhöpp má í mörgum tilvikum rekja til hraðaksturs, of stutts bils milli ökutækja eða annarrar óaðgæslu í umferð, er spurning hvort hægt sé að fækka þessum slysum með samstilltu átaki.

Væri það til að mynda verðugt markmið að fækka slysum um helming, niður í eitt slys annan hvern dag á þessu ári? Að gera þá kröfu að hver ökumaður geri sitt svo aðrir megi komast heilir heim? Er það þess virði að reyna?

Lögreglan mun, með ofangreint markmið í huga, kynna vikulega upplýsingar um fjölda slysa og bera saman við markmiðið, fara yfir mögulegar ástæður þeirra og eftir atvikum hvort og þá hvaða ráðstafanir gætu dugað til að koma í veg fyrir samskonar slys.

Markmiðið er sem sé að fækka umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu um helming árið 2014 miðað við síðasta ár. Þetta var reynt í fyrra, en gekk þá ekki eftir. Það er hins vegar vel þess virði að gera aðra tilraun.

Ert þú til?