31 Ágúst 2012 12:00

Falsaður 100 dollara seðill kom fram í gær í bankaútibúi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Karlmaður hugðist skipta seðlinum í íslenskar krónur, en glöggskyggn  gjaldkeri sá um leið og hann fékk hann í hendur að ekki var allt með felldu. Seðillinn reyndist við nánari skoðun vera úr venjulegum pappír.

Laumufarþegi  í vélarrúmi bifreiðar

Svörtum kettlingi var komið á lögreglustöðina í Reykjanesbæ, eftir að hann hafði gerst laumufarþegi í bifreið. Ökumaður hennar hafði ekið nokkurn spöl og heyrt kattarmjálm allan tímann.  Þegar ekki varð lengur við unað fór hann að aðgæta hvaðan þetta ákall  gæti komið. Í vélarrúmi bifreiðarinnar reyndist kúra lítill svartur kisi, sem lét vel í sér heyra. Lögregla hafði samband við Heilbrigðiseftirlitið á Suðurnesjum sem sótti kettlinginn.

Sviptur í hraðakstri

Ellefu ökumenn hafa á undanförnum dögum verið staðir  að því að aka yfir leyfilegum hámarkshraða í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Hann hafði verið sviptur ökuréttindum síðan í vor. Að auki var ökumaður handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru klippt skráningarnúmer af fjórum bifreiðum þar sem þær reyndust vera ótryggðar.

Innbrot í golfskála

Brotist var inn í golfskálann í Grindavík í gær. Þegar lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang  mátti sjá að gluggi hafði verið spenntur upp með spýtu, sem lá fyrir neðan hann. Ekki liggur enn ljóst fyrir hvort einhverju var stolið, en lögregla rannsakar málið.

Áfengisþjófur tekinn

Þjófnaður á áfengi var tilkynntur til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Karlmaður hafði komið inn í vínbúðina í Njarðvík, tekið þar áfengispela og látið sig hverfa án þess að borga.  Lýsing á manninum lá fyrir og fann lögregla hann skömmu síðar. Hann var færður á lögreglustöð, þar sem tekin var af honum skýrsla, og honum síðan sleppt.

Lenti í vinnuslysi

Slípirokkur hljóp í hönd manns sem var við vinnu sína í íþróttahúsi í Reykjanesbæ. Maðurinn var að skera stálbita þegar óhappið var. Hann hlaut skurð á hendi og fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þaðan fór hann á Landspítala þar sem áverkarnir voru rannsakaðir nánar.