26 Ágúst 2011 12:00

Lögregla hefur síðustu misseri sett sér þemaverkefni í hverjum mánuði þar sem athyglinni er beint að brotum í umferð sem hafa verið áberandi eða sérstök ástæða þótt til að sinna vegna hættu sem þau skapa. Dæmi um slík verkefni er eftirlit með farsímanotkun án handfrjálss búnaðar og stefnuljósanotkun. Þá hefur athyglinni verið beint að hrað- og svigakstri ökumanna í þéttri umferð. Brot sem þessi skapa hættu fyrir aðra ökumenn og óöryggi. Það er mat lögreglu að nokkuð hafi áunnist en að enn finnist ökumenn sem telja að reglur er um þetta gilda eigi ekki við þá.

Lögregla mun fylgjast sérstaklega með ofangreindum brotum næstu vikurnar. Til þess mun hún styðjast við hefðbundið, sýnilegt umferðareftirlit en einnig nota ómerktar lögreglubifreiðar til þessa. Vonar lögregla að vitneskja ökumanna um notkun ómerktra lögreglubifreiða við umferðareftirlit letji þá til brota sem ekki láta segjast að öðrum kosti. Lögregla lýsir að endingu þeirri ósk sinni að ekki þurfi að koma til neinna afskipta vegna þessara brota.