8 Febrúar 2008 12:00

Í gærkvöldi, fimmtudag, barst lögreglu vísbending um aðila sem tengdust þjófnaði á tveimur fartölvum í Fjölbrautaskóla Suðurlands og í heimavist skólans sem átti sér stað í síðustu viku. Aðilar sem höfðu lesið frétt í héraðsblöðunum á Selfossi um þjófnaðinn komu lögreglu á sporið.  Í kjölfarið voru fjórir unglingsdrengir handteknir.  Tölvurnar fundust hjá tveimur drengjanna.  Drengirnir voru yfirheyrðir og hafa viðurkennt að hafa stolið tölvunum og komið þeim í sölu.  Málið er upplýst og eigendur munu fá fartölvurnar sínar í hendur en ekki er víst að gögninn sem áttu að vera inni á þeim séu enn til staðar.  Atvik þetta ætti að vera áminning um að eigendur tölva afriti gögn reglulega.