21 Maí 2015 14:52

Nokkuð hefur verið um slys í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Til dæmis féll hálfsjötugur karlmaður niður fjóra metra úr stiga, þegar listi á húsinu sem hann studdi sig við,  brotnaði. Maðurinn lenti á stétt og fann til eymsla í baki. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlyningar.  Þá meiddist kona á öxl þegar hún var í leikfimi með fleiri konum. Talið var að hún hefði farið úr axlarlið og var einnig flutt á HSS með sjúkrabifreið.