9 Október 2015 10:32

Maður sem féll úr álstiga þar sem hann var við vinnu sína í gær handleggsbrotnaði og fór úr olnbogalið. Maðurinn var að vinna við brunavarnarkerfi í leikskóla í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þegar hann féll úr stiganum niður á gólf byggingarinnar og kom niður á olnbogann.  Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala þar sem gert var að meiðslum hans. Lögregla upplýsti Vinnueftirlitið um slysið.