26 Júní 2014 12:00

Fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar á Vestfjörðum hefur staðið sig vel frá því að hann kom vestur í apríl á þessu ári.   Hundurinn sem heitir Tindur hefur þannig átt stóran þátt í að lögreglumenn hafa fundið og lagt hald á ólögleg fíkniefni.   Í gær fann hundurinn talsvert magn af hvítu efni sem talið er vera amfetamín en efnin höfðu verið falin vandlega í vélarhluta bifreiðar sem lögreglumenn stöðvuðu á Ísafirði við almennt eftirlit. 

Það sem af er ári hefur lögreglan á Vestfjörðum lagt hald á tæp 130 grömm af ólöglegum fíkniefnum. 

Lögreglan á Vestfjörðum hefur kært  27 ökumenn  fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna það sem af er þessu ári.  Það er sami fjöldi og í fyrra. 

Þeir sem meðhöndla fíkniefni í umdæminu mega búast við afskiptum lögreglu en með tilkomu fíkniefnaleitarhunds hefur eftirlit verið hert til muna.

Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir vitneskju um fíkniefniumsýslu að hafa samband, annað hvort beint í síma lögreglunnar á Vestfjörðum, sem er 450 3730, eða í upplýsingasíma lögreglu, sem er 800 5005.  Fullri nafnleynd er heitið þeim er upplýsingar veitir.