8 Október 2015 12:54

Hollenskur Karlmaður og hollensk kona voru í gær, 7. október, úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald. Konan til 21. október en karlmaðurinn til 3. nóvember. Þau voru handtekin þann 8. september sl. við komu ferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar eftir að mikið magn fíkniefna, E-töflur og MDMA duft ásamt lítilræðis af amfetamíni, fundust í húsbíl sem þau voru á. Þau eru á fimmtugsaldri. Rannsókn málsins heldur áfram en ekki er hægt að veita nánari upplýsingar um framvindu hennar.