28 Ágúst 2006 12:00

Lögreglan í Árnessýslu hefur til rannsóknar mál er varðar flutning umtalsverðs magns af fíkniefnum inn í fangelsið að Litla Hrauni.   Í þágu rannsóknar málsins var einn maður, fangavörður í sumarafleysingastarfi,  úrskurðaður í 7 daga gæsluvarðhald að kvöldi laugardagsins og 2 menn, refsifangar á Litla Hrauni,  voru úrskurðaðir í 6 daga gæsluvarðhald í gærkvöldi. 

Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi og verða frekari upplýsingar um málið ekki gefnar að sinni.