9 Júlí 2005 12:00

Kl.15:10 í dag handtók lögreglan á Ísafirði fjögur ungmenni í bifreið á Suðureyri.  Grunur hafði vaknað um að ungmennin væru að meðhöndla fíkniefni.  Þau voru öll færð á lögreglustöðina á Ísafirði.  Í bifreið þeirra fannst ætlað hassreykingaráhald og fleira er benti til fíkniefnameðhöndlunar.  Þá fannst í bifreiðinni hafnarboltakylfa.  Ungmennin hafa verið til yfirheyrslu hjá lögreglunni á Ísafirði í dag en hefur nú verið sleppt.  Einn fjórmenninganna hefur viðurkennt að hafa komið með lítilræði af hassi vestur og notað það sjálfur.  Lagt var hald á kylfuna og áhöldin.

Í gærkveldi hafði lögreglan sérstakt eftirlit á Suðureyri í tengslum við hátíðina „Sæluhelgi á Suðureyri“.  Þar voru höfð afskipti af nokkrum ungmennum, sem ekki hafa aldur til að kaupa eða meðhöndla áfengi.  Lagt var hald á áfengi það er ungmennin voru með í fórum sínum.

Lögreglan mun herða eftirlit sitt á Suðureyri í kvöld.  Þar er nú töluverður fjöldi gesta í tilefni hátíðisdaganna.