6 Janúar 2006 12:00

Nú síðdegis í dag kvað Héraðsdómur Vestfjarða upp úrskurð, að kröfu lögreglustjórans á Ísafirði, þess efnis að tveir einstaklingar skuli sæta gæsluvarðhaldi til kl.16:00 þriðjudaginn nk.   Er þetta liður í rannsókn lögreglunnar á Ísafirði á meintri fíkniefnadreifingu á norðanverðum Vestfjörðum undanfarið.  Lögreglan á Ísafirði framkvæmd húsleit í gær og handtók umrædda einstaklinga.  Lagt var hald á nokkurt magn fíkniefna, áhöld og fjármuni sem ætlað er að stafi af sölu fíkniefna.

Lögreglan vinnur á fram að rannsókn málsins.