19 Febrúar 2006 12:00

Eins og fram hefur komið eru tveir menn í haldi lögreglunnar á Ísafirði vegna rannsóknar á meintri fíkniefnadreifingu.  En mennirnir voru handteknir um kl.10:00 í gærmorgun í Ísafjarðardjúpi.  Í fórum þeirra fundust fíkniefni í sölueiningum, n.t.t. hass. 

Að kröfu lögreglustjórans á Ísafirði voru mennirnir, sem eru 16 og 19 ára, úrskurðaðir í dag í gæsluvarðhald til kl.16:00 á morgun.

Í þágu rannsóknar málsins verður ekki gefið upp hvert magn efnanna, sem lagt var hald á, er.  Grunsemdir eru um að efnið hafi átt að fara til dreifingar á Vestfjörðum.

Fleiri aðilar, en ofangreindir tveir menn, hafa verið yfirheyrðir vegna málsins.