16 Október 2008 12:00

Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á tæplega 250 grömm af hassi,  44 ecstasytöflur og tæpt gramm af amfetamíni aðfaranótt miðvikudagsins 15. þessa mánaðar.  Hluti efnisins fannst við leit lögreglu í bifreið sem tveir ungir menn komu akandi á úr Reykjavík, þá nokkrum klukkustundum áður.  Hinn hluti efnisins fannst falinn á afviknum stað, utan dyra á Ísafirði. 

Fíkniefnaleitarhundurinn Dollar tók þátt í leitinni.

Mennirnir voru í haldi lögreglunnar meðan rannsókn málsins stóð yfir og var sleppt að yfirheyrslum loknum síðdegis í gær.  Þeir hafa báðir komið við sögu vegna fíkniefnamála áður.

Mennirnir hafa viðurkennt að hafa ætlað að bjóða efnið til sölu á norðanverðum Vestfjörðum.

Annar aðilanna er jafnframt grunaður um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum fíkniefna.