26 Apríl 2007 12:00

Fíkniefnahundurinn Bea sem er í eign lögreglunnar á Selfossi hefur heldur betur sannað tilverurétt sinn.  Þjálfari hundsins Jóhanna Eivinsdóttir ásamt Steinari Gunnarssyni, yfirþjálfara RLS voru við þjálfun í Fjarðabyggð.  Lögreglumenn á Eskifirði höfðu í almennu eftirliti stöðvað bifreið.  Grunur var um að fíkniefni væru í bifreiðinni. Lögreglumennirnir færðu ökumanninn og bifreiðina á lögreglustöð.  Hundateymið var kallað til aðstoðar. 

Við leit í bifreiðinni var Bea notuð og fann hún afar fljótt um það bil 29 gr. af hassi.  Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hins grunaða manns.  Manninum var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Það er því ljóst að hér er um mikinn kostagrip að ræða og verður eflaust lögreglunni á Selfossi mikil búbót í baráttunni gegn fíkniefnum.