14 Febrúar 2013 12:00

Í gær stöðvaði lögreglan fíkniefnasendingu sem átti að fara með áætlunarflugi frá Reykjavík til Ísafjarðar. Í sendingunni reyndist vera um 10 grömm af marihúana.  Móttakandi sendingarinnar var handtekinn á Ísafirði og var hann færður á lögreglustöð til yfirheyrslu.  Hann viðurkenndi að hafa átt von á fíkniefnum.  Málið telst upplýst. 

Um var að ræða samstarfsverkefni lögreglunnar á Vestfjörðum, á höfuðborgarsvæðinu og tollgæslunnar í Reykjavík.  En tollgæslan lagði til fíkniefnaleitarhund.  Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir upplýsingum hvers konar fíkniefnameðhöndlun að hafa samband í upplýsingasíma lögreglunnar, sem er 800 5005.  Fullri nafnleynd er heitið.