23 Janúar 2015 12:17

Lögreglan á Suðurnesjum fann kannabisefni og amfetamín í húsleit sem gerð var í umdæminu nýverið. Húsráðandi hafði heimilað leit og í bílskúr fannst meint kannabisefni í áldós og meint amfetamín í keramikglasi. Þar fannst einnig mikill búnaður til kannabisræktunar. Húsráðandi var handtekinn og færður á lögreglustöð til skýrslutöku.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.