21 September 2022 15:55

Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn.  Móðirin er á fertugsaldri en sonur hennar á sextánda aldursári. Þau voru bæði úrskurðuð í gæsluvarðhald til föstudagsins 23. september. Pilturinn er sökum ungs aldurs vistaður á stofnun ætluð fyrir ungmenni en gistir ekki fangageymslur meðan gæsluvarðhald varir.

Rannsókn málsins, sem unnið var í samstarfi lögreglu og tollgæslu, miðar vel. Vegna rannsóknarhagsmuna getur lögregla ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.