13 Desember 2007 12:00

Nú í morgun lagði lögreglan á Vestfjörðum, lögreglumenn frá starfsstöðinni á Hólmavík, hald á lítilræði af kannabisefnum og áhöldum sem talin eru hafa verið notuð til fíkniefnaneyslu. 

Lögreglan hafði afskipti af fjórum mönnum sem voru í einni bifreið, á leið vestur Steingrímsfjarðarheiði.  Lögregluna grunaði að mennirnir væru með fíkniefni og reyndist sá grunur á rökum reistur þegar leit á mönnunum og í bifreiðinni fór fram.  

Mennirnir hafa verið yfirheyrðir á Hólmavík en hefur nú verið sleppt, enda telst málið upplýst.

Þessa dagana er Lögreglan á Vestfjörðum að efla almennt umferðareftirlit í öllu umdæminu.  Einnig verður lögð sérstök áhersla á alla meðhöndlun fíkniefna, hugsanlegan flutning fíkniefna til umdæmisins flugleiðis, með pósti, vöruflutningum og einkabifreiðum, svo eitthvað sé nefnt.  Hvatt er til þess að almenningur láti lögreglunni í té allar upplýsingar sem geta komið að gagni í baráttunni gegn fíkniefnum.  Upplýsingasímanúmer lögreglunnar á Vestfjörðum er 450 3730.