2 September 2008 12:00

Við tollafgreiðslu Norrænu í dag fannst talsvert magn fíkniefna í bifreið sem kom með ferjunni.  Að verkefninu komu auk tollgæslu- og lögreglumanna embættisins á Seyðisfirði, starfsmenn tollgæslunnar í Reykjavík og á Eskifirði. Notaðir voru fíkniefnahundar frá embættinu og tollstjóranum í Reykjavík. Fíkniefnahundur embættisins sannaði ágæti sitt.  Málið er afrakstur samstarfs tollgæslunnar á Íslandi og í Færeyjum. Málið hefur verið afhent fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar.