11 September 2012 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af manni, sem var að reyna að brjótast inn í hús með barefli. Í ljós kom að þarna var að verki húsráðandi sem hafði læst sig úti. Hann var kominn inn í inngang að bílskúr húsnæðsins þegar lögreglumenn komu á vettvang og fundu þeir sterka kannabislykt þar. Þeir leituðu í bílskúrnum og fundu kannabisefni í skúffu innst í honum. Húsráðandinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var tekin af honum skýrsla og honum sleppt að því loknu.

Brotist inn í verkfæragám

Lögreglunni á Suðurnesjum var í gær tilkynnt um að brotist hefði verið inn í verkfæragám í Svartsengi. Þegar lögreglumenn komu á vettvang reyndist hafa verið klippt á tvo hengilása á öðrum af tveimur gámum sem eru á svæðinu. Ekki var ljóst hvort einhverju hafði verið stolið. Þá var búið að eiga við hengilás á hinum gámnum, en það höfðu hinir óprúttnu ekki haft erindi sem erfiði, því þeir urðu frá að hverfa við svo búið.