10 Febrúar 2016 11:21

Lögreglan á Suðurnesjum fann í gærkvöld fíkniefni í mannlausri bifreið, sem skilin hafði verið eftir á Garðvegi. Lögreglumenn voru við hefðbundið eftirlit þegar þeir komu auga á bifreiðina sem var utan vegar á gatnamótum Garðvegar og Útgarðsvegar. Þegar lýst var inn í bifreiðina sáust í opnu hanskahólfi þrír pokar með meintum kannabisefnum. Lögregla hóf leit að ökumanni hennar og fann í skemmu sem hann hafði til afnota tvo poka með kannabisefnum.  Ökumaðurinn heimilaði leit í bifreiðinni og  játaði akstur undir áhrifum fíkniefna og eign sína á kannabispokunum.

Í bifreið annars ökumanns sem handtekinn var vegna fíkniefnaaksturs fundust fíkniefni í sólskyggni. Hinn þriðji ók án ökuskírteinis á ótryggðri bifreið og sá fjórði neitaði að láta í té sýni á lögreglustöð. Hann var því sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.