2 Janúar 2013 15:54

Fjórir í fíkniefnaakstri
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld rúmlega tvítugan ökumann, sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann viðurkenndi að hafa reykt kannabis í gærdag og staðfestu sýnatökur á lögreglustöð það. Við leit í bifreið mannsins fundust kannabisefni í hólfi við útvarpstæki.

Áður hafði lögregla handtekið þrjá ökumenn, sem einnig voru grunaðir um fíkniefnaakstur. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuréttindum. Sýnatökur staðfestu neyslu ökumannanna á kannabisefnum.

Slys í ískrossi

Slys varð á Seltjörn við Grindavík í gær, þegar karlmaður, sem tók þátt í ískrossi ók hjóli sínu utan í grjót sem stóð upp úr ísnum og féll við það. Maðurinn var að aka í hringi á ísnum þegar óhappið varð. Lögregla, sjúkraflutningamenn og læknir komu á slysstað. Ökumaður hjólsins kvartaði undan eymslum í mjöðm og var hann fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.