27 Október 2011 12:00

Í nótt er leið voru þrír erlendir ríkisborgarar handteknir í orlofshúsi í Árnessýslu grunaðir um ólöglega vörzlu og meðferð mikils magns meints kókaíns.  Í framhaldi var fjórði erlendi ríkisborgarinn handtekinn á höfuðborgarsvæðinu.  Lögreglan á Selfossi naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Málið er í rannsókn og af rannsóknarhagsmunum verða frekari upplýsingar ekki veittar fyrr en rannsókn hefur miðað frekar áfram.