2 Febrúar 2015 10:38

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn um helgina, sem báðir voru staðnir að fíkniefnaakstri. Annar reyndist hafa neytt kannabisefna og hinn einnig, auk amfetamíns. Þá voru  tveir ökumenn til viðbótar handteknir fyrir ölvunarakstur. Annar þeirra var að leggja af stað til Reykjavíkur þegar lögregla stöðvaði hann.