2 Ágúst 2006 12:00

Í morgun kl. 06:23 barst lögreglu tilkynning um að eldur væri í hlöðu og fjósi að bænum Húsatóftum á Skeiðum.   Þegar að var komið reyndist mikill eldur í húsunum og brunnu þar inni um fjörutíu kýr og auk þess fjöldi hænsna.

Eiginlegu slökkvistarfi lauk um kl. 08:00 en brunavakt er við húsin og er nú að hefjast vinna við rannsókn eldsupptaka.   Lögreglan á Selfossi hefur leitað eftir sérfræðiaðstoð frá Tæknideild Lögreglunnar í Reykjavík vegna þeirrar rannsóknar auk þess sem rannsóknarmenn frá Neytendastofu munu kanna sérstaklega möguleika á íkviknun út frá rafmagni.   Vettvangurinn er yfirgripsmikill og mun þessi vinna taka nokkurn tíma.

Ljóst er að fjárhagslegt tjón af brunanum nemur tugum milljóna.