13 Febrúar 2014 12:00

Eins og fram er komið voru karl og kona handtekin á heimli sínu á Stokkseyri í gær.  Aðdragandi aðgerðanna var sá, að ungur karlmaður leitaði til lögreglu skömmu eftir hádegi í gær og skýrði frá því að honum hefði verið haldið nauðugum í herbergi í íbúðarhúsi parsins á Stokkseyri og hann beittur ofbeldi og hótunum.  Lögregla greip þegar í stað til viðeigandi ráðstafana og fór á vettvang og handtók parið sem var flutt til yfirheyrslu á Selfossi.  Tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi tæknirannsókn á vettvangi.  Við yfirheyrslur sakborninga, vitna og að teknu tilliti til niðurstöðu tæknirannsóknar tók rannsókn málsins nýja stefnu.  Grunur vaknaði um að meintur brotaþoli hefði sagt ranglega frá frelsissviptingunni.  Hann var handtekinn í framhaldinu og fékk réttarstöðu sakbornings og mun verða kærður fyrir rangar sakargiftir.  Yfirheyrslum yfir honum mun væntanlega ljúka í dag.  Parið var látið laust í gærkvöldi eftir yfirheyrslur.  Karlinn viðurkenndi að hafa staðið að ræktun 22ja  kannabisplantna sem fundust í húsinu.  Rannsókn málsins er langt komið og lýkur væntanlega í dag.