20 Desember 2006 12:00

Fundi Almannavarnarnefnda í Árnessýslu var að ljúka.   Björgunarsveitir hafa aðstoðað hestaeigendur við að bjarga hrossum úr úthaga.   Sveitirnar munu ljúka fyrirliggjandi verkefnum og fara síðan heim að því loknu en verða viðbúnar útköllum.  Þá  hafa orðið skemmdir á vegum í uppsveitum sýslunnar og eru vegfarendur hvattir til að hafa varann á á ferðum sínum á flóðasvæðunum.   Starfsmenn vegagerðar eru á ferð um sýsluna að merkja lokanir eins og hægt er.   Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu hefur kallað til aðstoðar SHS og fengið þaðan menn og tæki til að bregðast við fari svo að flæði inn í hús í sýslunni.  Slökkvilið Ölfuss er jafnframt í viðbragðsstöðu.

Varað er við hugsanlegri skriðhættu í fjöllum vegna mikillar úrkomu og leysinga á skömmum tíma að undanförnu.

Veðurspá gerir ráð fyrir áframhaldandi úrkomu en kólnandi með morgninum.   Gera má ráð fyrir vaxandi rennsli í ám fram til miðnættis og að sú hæð haldist fram eftir nóttu a.m.k.  Fólk er því beðið að hafa varann á á ferðum sínum.   Þá eru foreldrar hvattir til að gæta að börnum sínum og sjá til þess að þau fari ekki í of mikla nálægð við vatnsföll en nokkuð hefur borið á því að börn séu að leik á bökkum Ölfusár við Selfoss.

Næsti fundur er boðaður kl. 10:00 í fyrramálið og verður staðan þá metin.