6 Júní 2003 12:00

Lögreglustjórinn á Selfossi vil koma eftirfarandi á framfæri til þeirra er málið varðar.

Varðar húsflutninga í umdæmi lögreglunnar í Árnessýslu.

Hér með tilkynnist að ekki verða veittar undanþágur til flutnings á breiðari farmi en 4,5 metrar á tímabilinu frá kl. 07:00 að morgni föstudags til kl. 24:00 að kvöldi sunnudags um umdæmið. Ákvörðun þessi er tekin með tilliti til mikillar umferðar um helgar og gildir til 20. ágúst n.k.