2 Júní 2023 15:59

Í dag tók dómari við Héraðsdóm Suðurlands fyrir kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna yfir karlmanni vegna rannsóknar lögreglu á andláti ungrar konu á Selfossi frá því í apríl síðastliðnum.

Fallist var á kröfu lögreglustjórans um gæsluvarðhald til 16. júni n.k.

Rannsókn lögreglu beinist að hugsanlegu manndrápi. Henni miðar vel og mun halda áfram af fullum þunga.