22 Nóvember 2016 12:14

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðastliðinn föstudag eftir að ljóst var að þeir höfðu framvísað fölsuðum skilríkjum. Báðir framvísuðu mennirnir, sem kváðust vera vinir, skilríkjum frá Grikklandi, en þeirra réttmætu vegabréf fundust í farangri þeirra. Þeir viðurkenndi brot sín og fóru mál þeirra í hefðbundið ferli.

Þá var þriðji aðilinn stöðvaður í flugstöðinni einnig á föstudaginn, þar sem grunur vaknaði um að hann væri ekki  lögmætur handhafi vegabréfsins sem hann framvísaði.  Sú reyndist einnig raunin og fór mál hans einnig í hefðbundið ferli.