26 Maí 2005 12:00

Fimmtudaginn 26. maí 2005 kl. 15:00.

Að undanförnu hafa lögreglunni í Keflavík borist tilkynningar um mann á rauðri bifreið sem hafi verið að reyna að lokka ung börn upp í bifreiðina til sín. Um er að ræða allt að fjögur tilvik, sennilega á tímabilinu frá 19.05.05 til 25.05.05. Börnin sem fyrir þessu hafa orðið eru nemendur í Holtaskóla og Myllubakkaskóla í Keflavík og Njarðvíkurskóla.

Málið er óleyst og enn sem komið er beinist ekki grunur að neinum tilteknum aðila. Lögreglumenn hafa í dag heimsótt grunnskóla í Reykjanesbæ til að ræða við nemendur og kennara um málið og skólastjórnendur hafa vakið athygli foreldra á því og hvatt til varúðar í samskiptum barna við ókunnuga.

Lögreglan í Keflavík hvetur foreldra til að brýna það fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bifreiðar hjá ókunnugum. Jafnframt óskar lögreglan eftir því að fólk tilkynni um grunsamleg atvik. Nokkuð hefur borist af ábendingum sem lögreglan hefur kannað og er nú að kanna.

Bæjarbúar virðast margir nokkuð óttaslegnir vegna málsins og æsings hefur orðið vart meðal barna og unglinga. Þetta kom meðal annars fram í því að aðsúgur var gerður að heimili í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna rauðrar bifreiðar á heimilinu sem einhverjir aðilar töldu að tengdist málinu. Lögreglan hefur rannsakað þennan þátt málsins sérstaklega og getur staðhæft að umrædd bifreið tengist ekki málinu.