9 September 2006 12:00

Stofnfundur Lögreglustjórafélags Íslands.

Í dag var haldinn á Hvolsvelli stofnfundur Lögreglustjórafélags Íslands.  Félagið er stofnað vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi lögreglunnar og eru félagar allir lögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar sem sinna mun þeim störfum eftir 1. janúar 2007. Tilgangur félagsins er að vera vettvangur faglegrar umræðu um málefni lögreglunnar þ.m.t að stuðla að bættu starfsumhverfi lögreglunnar, vera ráðgefandi og hafa frumkvæði gagnvart ríkisstjórn og Alþingi um nýmæli í löggjöf sem vænta má að snerti verksvið félagsmanna eða þegar óskað er eftir áliti félagsins, stuðla að samræmi í lagaframkvæmd og embættisfærslu félagsmanna og annast fyrirsvar fyrir félagsmenn í kjaramálum.

Stjórn félagsins skipa eftirtaldir lögreglustjórar: Kjartan Þorkelsson Hvolsvelli formaður, Stefán Eiríksson Höfuðborgarsvæðinu, Sigríður B. Guðjónsdóttir Ísafirði, Ólafur K. Ólafsson Stykkishólmi og Lárus Bjarnason Seyðisfirði.  Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason heiðraði fundinn með nærveru sinni og flutti ávarp.

Meðfylgjandi ljósmynd var tekin af lögreglustjórunum er sátu stofnfundinn ásamt dómsmálaráðherra Birni Bjarnasyni

 Efri röð frá vinstri; Inger L. Jónsdóttir, Jóhann Benediktsson, Bjarni Stefánsson, Karl G. Hjaltason, Ólafur Þ. Hauksson, Ríkarður Másson, Ingimundur Einarsson, Stefán Skarphéðinsson, Halldór Kristinsson og Ólafur H. Kjartansson.

Neðri röð frá vinstri; Stefán Eiríksson, Arnar Guðmundsson, Haraldur Johannessen, Björn Bjarnason, Kjartan Þorkelsson, Ólafur K. Ólafsson og Sigríður B. Guðjónsdóttir.

Neðri röð frá vinstri; Stefán Eiríksson, Arnar Guðmundsson, Haraldur Johannessen, Björn Bjarnason, Kjartan Þorkelsson, Ólafur K. Ólafsson og Sigríður B. Guðjónsdóttir.