4 Mars 2024 10:34

Grindavík var rýmd sl. laugardag svo og Svartsengissvæðið þar sem talið var að eldgos gæti hafist þá og þegar.   Þessar rýmingar gengu vel.  Reynsla gærdagsins sýnir að á háannatíma hjá Bláa Lóninu tók um 40 mínútur að rýma starfsstöðvar fyrirtækisins.  Þá var enginn asi á rýmingu inn í Grindavík og tók hún um eina klukkustund.  Þar voru fáir á ferli fyrir utan viðbragðsaðila og verktaka við vinnu við varnargarða.   Vinna þeirra liggur niðri í dag samkvæmt áður ákveðnu skipulagi.

 

Veðurstofa Íslands telur enn auknar líkur á eldgosi og benda gögn til þess að kvikuhlaupið í gær hafi stöðvast við Hagafell.  Að mati Veðurstofunnar er talið líklegt að kvikumagn undir Svartsengi haldi áfram að aukast sem gæti endað með öðru kvikuhlaupi eða eldgosi.   Nýtt eldgos getur hafist með stuttum fyrirvara.  Uppfært hættumat Veðurstofu Íslands tók gildi kl. 13 í dag og verður að öllu óbreyttu endurskoðað þriðjudaginn 5. mars kl. 15.   Líkleg atburðarrás næstu daga:

  • Kvikumagn undir Svartsengi heldur áfram að aukast sem gæti endað með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.
  • Eldgos gæti hafist með mjög stuttum fyrirvara, jafnvel innan við 30 mínútur.
  • Líklegast er að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells.

 

Á svæði 1 samkvæmt hættumatskorti Veðurstofunnar, starfssvæðum Bláa Lónsins, Northern Light Inn og HS Orku er talin vera mikil hætta á hraunrennsli.  Litakvarði þessa svæðis sýnir töluverða hættu.  Framangreind starfssvæði eru í dag varin með varnargörðum.   Í Grindavík er talin vera mikil hætta á jarðfalli ofan í sprungur, hraunflæði og sprunguhreyfingum.  Grindavík er varin varnargörðum en uppbyggingu þeirra er ekki lokið.  Litakvarði fyrir Grindvík sýnir töluverða hættu.

 

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið þá ákvörðun að hverfa til fyrra horfs hvað varðar aðgengi að framangreindum svæðum og áréttar neðangreint.

 

Ríkislögreglustjóri féll frá  fyrirmælum um brottflutning  úr Grindavík frá og með 19. febrúar 2024.   Ákvörðun ríkislögreglustjóra um brottvísun, með heimild í 24. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008, tók gildi 15. janúar sl. og var síðan framlengd einu sinni eða þann 4. febrúar sl.

 

Með hliðsjón af framansögðu ákvað lögreglustjórinn á Suðurnesjum að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn.  Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga.

 

  • Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.  Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri.  Lögreglustjóri mælir ekki með því að fólk dvelji í bænum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara.   Hætta er metin töluverð á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum.  Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   
  • Á starfssvæði Bláa Lónsins, Northern Light Inn og HS orku er talin mjög mikil hætta á hraunflæði.   Um tíma þrengdi að aðkomuleiðum þegar hraun rann yfir Grindavíkurveg og lokaði leiðinni inn að Bláa Lóninu, Northern Light Inn og HS orku.  Lagður var vegur yfir ný runnið hraunið og aðkoma um Grindavíkurveg opnuð að nýju. 

 

Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.  Land rís í Svartsengi og merki eru um að það styttist í næsta gos vegna þeirrar kviku sem safnast nú saman undir Svartsengi.

 

Lokunarpóstar eru við Bláalónsveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.  Þá er ekki hægt að aka Grindavíkurveg inn til Grindavíkur þar sem hraun rann yfir þjóðveginn í eldgosinu 14. janúar sl.

 

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.   Í gær voru þær notaðar við rýmingu með góðum árangri.

 

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.  Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því.  Lögreglustjóri bendir á að líklegt er að það styttist í næsta gos og biður fólk um að taka tillit til þess.   Fyrirvari vegna næsta eldgoss gæti orðið mjög stuttur.  

Ef horft er til fyrri eldgosa á svæðinu gæti nýtt eldgos hafist með skömmum fyrirvara, innan við 30 mínútur, allt eftir því hvar kvika kemur upp.  Ekki er hægt að útiloka að gos komi upp inn í Grindavík þótt það teljist ólíklegt.  Bláa Lónið og Northern Light Inn eru inn á skilgreindu hættusvæði Veðurstofu Íslands þar sem talin er töluverð hætta á náttúruhamförum og sérstaklega nefnt að mikil hætta er á hraunrennsli.  Það er til marks um stöðuna á þessu svæði að það hefur þurft að rýma svæðið, nú síðast í gærdag.

 

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.

 

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

 

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.

 

Framangreint fyrirkomulag tók gildi sunnudaginn 3. mars kl 16 og verður tekið til endurskoðunar sunnudaginn 10. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum.