7 September 2011 12:00

7. september 2011.

Fréttatilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum

Voveiflegt andlát manns í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum

Við reglubundið eftirlit lögreglu með fanga í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum um kl. 23:20 síðastliðið mánudagskvöld var komið að fanga sem svaraði ekki áreiti og kom ekki til meðvitundar þrátt fyrir endurlífgunartilraunir lögreglu og sjúkraflutningsmanna. Læknir sem kvaddur var á vettvang úrskurðaði manninn látinn.

Hinn látni var 33 ára gamall pólskur karlmaður sem lögreglan hafði handtekið fyrr um daginn vegna mikillar ölvunar.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum óskaði eftir því við ríkissaksóknara að öðrum lögreglustjóra yrði falin rannsókn þessa voveiflega andláts og fól ríkissaksóknari lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að annast rannsókn málsins og er sú rannsókn á frumstigi.