23 Nóvember 2007 12:00

Við rannsókn lögreglunnar í Vestmannaeyjum á bruna í Tangahúsinu sem tilkynntur var til lögreglu um miðjan dag í gær kom í ljós að nokkur ungmenni undir 15 ára aldri höfðu verið inni í húsinu að fikta með eld. 

Höfðu einhver þeirra verið að reykja vindlinga þarna inni og verið að leika sér við að kveikja í pappa sem var á gólfi á efri hæð hússins.  Töldu þau sig hafa slökkt í pappanum.  Telur lögreglan sterkar líkur á að glóð hafi verið í pappanum þegar þau síðan yfirgáfu húsið sem olli því að eldur blossaði upp.

Málið er enn í rannsókn.