10 Maí 2010 12:00

Reykjanesbæ, 10.05.2010.

Fréttatilkynning frá Lögreglunni á Suðurnesjum

varðandi rannsókn á ætluðu manndrápi þann 08.05.2010

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar ætlað manndráp í Reykjanesbæ sl. laugardag. Rannsókninni miðar eftir atvikum vel en er á viðkvæmu stigi hvað varðar nákvæmar upplýsingar um aðdraganda og atburðarás þá sem leiddi til dauða karlmanns á sextugsaldri. Lögreglan þarf meðal annars að yfirheyra vitni í málinu, sannreyna ýmsar upplýsingar sem henni hafa borist og yfirheyra sakborning sem sætir gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 17. maí  n.k. kl. 16 eins og fram hefur komið.

Til að gæta rannsóknarhagsmuna er ekki unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að svo komnu máli og gera má ráð fyrir að þessar aðgerðir lögreglunnar muni taka næstu daga.