2 Ágúst 2003 12:00

                             

                                                                                                            2. ágúst 2003.

Þrátt fyrir að veður hafi ekki verið eins gott og vonast var til, á fyrsta degi unglingalandsmóts UMFÍ, hefur mótið tekist vel og farið vel fram.  Er það mótshöldurum og gestum þeirra til sóma.  Veðurspáin er góð fyrir daginn í dag og enn betri næstu daga og því von til hægt verði að geyma úlpurnar heima.

Rétt fyrir klukkan 19:00 í gær lagði lögreglan hald á 47 bjórflöskur, og fjórar flöskur af sterku áfengi, sem 6 ungmenni voru með í fórum sínum.  Þessi ungmenni voru ekki keppendur á mótinu, en sögðust vera að koma hingað til að horfa á keppnina.

Kl. 22:15 í gærkvöldi stöðvaði lögreglan á Ísafirði bifreið, sem í voru tvö ungmenni inni í Ísafjarðardjúpi.  Ungmennin voru að koma frá Reykjavík og var ferðinni heitið til Bolungarvíkur.  Við leit á öðru þeirra fannst lítilræði af kannabisefnum og í bifreiðinni fannst ætlað ólöglegt hormónalyf, stungulyf.

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum stendur yfir sameiginlegt eftirlit lögregluliðanna á Vestfjörðum.  Lögreglumenn eru sérstaklega vakandi með áfengi og hugsanlegri meðferð ungmenna á áfengi.  Einnig er fylgst grannt með umferðarhraða, ástandi ökumanna og hugsanlegri notkun fíkniefna, svo eitt sé nefnt.

Lögreglan hafði afskipti af nokkrum einstaklingum sem voru með áfengi í fórum sínum á kvöldvökunni og tónleikunum sem haldnir voru á vegum landsmóts UMFÍ, á túninu við Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði.  Flest þessi ungmenni voru á aldrinum 18 til 21 árs.  Áfenginu var hellt niður eða lagt hald á það.  Meðferð áfengis og annarra vímugjafa er stranglega bönnuð á alls staðar á mótssvæðinu. Lögreglan mun hafa strangt eftirlit á svæðinu.