22 Maí 2003 12:00

Mánudaginn 19. maí hittust lögreglustjórar og næstráðendur þeirra frá Ísafirði, Bolungarvík, Patreksfirði, Hólmavík og Búðardal á árlegum samráðsfundi þeirra.  Fundur þessi var 10. vorfundur þessara embætta, en sá fyrsti var haldinn í Bjarkarlundi í byrjun júní 1994.  Á fundum þessum eru rædd ýmiss löggæslumálefni, en þó sérstaklega er skipulagt samstarf milli embættanna í umferðarmálum, yfir sumartímann rætt. Síðastliðin tvö ár hafa svo haustfundir verið haldnir, þar sem rædd eru önnur löggæsluverkefni, þó sérstaklega forvarnarmálefni og annað starf er tengist æsku landsins, sem tilheyrir lögreglu og hún hefur með höndum.   Núna var fundurinn haldinn á Ísafirði, í fyrsta skiptið í þessi 10 ár.   Aðalmál fundarins var skipulag löggæslu á unglingalandsmóti UMFÍ, sem halda á í Ísafjarðarbæ 1. til 3. ágúst n.k.  Búist er við 6 – 10 þúsund gestum á mótið og má því ætla að mjög mikil umferð verði um vegi Vestfjarða þenna tíma.