30 Apríl 2003 12:00

Þann 26. apríl s.l. lauk fyrstu önn grunnnáms Lögregluskóla ríkisins 2003. Að þessu sinni voru 40 nemendur við nám á önninni, fimm þeirra hafa ekki, vegna meiðsla eða veikinda, lokið prófum í líkamsþjálfun, einn nemandi þarf að endurtaka próf í skýrslugerð og annar í líkamsþjálfun.

Námsárangur nemendanna var ágætur, meðaleinkunn þeirra var 7,90 sem verður að teljast nokkuð gott. Bestum árangri, 9,14 í meðaleinkunn, náði Einar Júlíusson og í næstu sætum þar á eftir voru þær Heiða Rafnsdóttir og Bjarney Sólveig Annelsdóttir. Heiða náði meðaleinkunninni 8,68, Bjarney 8,64. Skólastjóri Lögregluskólans, Arnar Guðmundsson, veitti þessum þremur nemendum sérstaka viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.

Núna tekur við fjögurra mánaða starfsþjálfun hjá öllum 40 nemendunum, hún fer fram hjá lögregluembættunum í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík.

Markmiðið með starfsþjálfuninni er að nemendurnir fái innsýn í lögreglustarfið og öðlist skilning á því; að þeir þjálfist og þroskist þannig að þeir geti leyst viðfangsefni sjálfstætt; að þeir fái skilning á samhenginu milli fræðilegu kennslunnar í grunnnámi skólans og lögreglustarfsins í raun og að séu reiðubúnir til náms á þriðju önn skólans sem hefst í byrjun september.

Heiða Rafnsdóttir, Einar Júlíusson og Bjarney Sólveig Annelsdóttir

Heiða Rafnsdóttir, Einar Júlíusson og Bjarney Sólveig Annelsdóttir

Rétt er að geta þess að öll eru þau ættuð af Suðurnesjum

Rétt er að geta þess að öll eru þau ættuð af Suðurnesjum