4 Mars 2016 17:26

Gæsluvarðhald sakbornings í mansalsmáli í Vík í Mýrdal rann út í dag. Héraðsdómur Suðurlands féllst á, fyrir stundu, kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um framlengingu gæslavarðhalds um fjórar vikur.  Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil, mann- og tímfrek.  Henni miðar vel en þó eru enn margir lausir endar og ógjörningur á þessu stigi að segja til um lok rannsóknarinnar.