5 Maí 2023 16:45

Héraðsdómur Suðurlands kvað upp úrskurð nú fyrir stundu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni  til 19. maí nk. í tengslum við rannsókn lögreglu á andláti ungrar konu frá 27. apríl sl.

Beinist rannsókn lögreglu nú að hugsanlegu manndrápi til samræmis við bráðabirgðaniðurstöður krufningar. Rannsókn málsins er enn á viðkvæmu stigi og meðal annars beðið gagna erlendis frá. Sem fyrr mun lögregla setja út tilkynningar hér á vefnum þegar tilefni er til.