19 Október 2021 17:21

Fundur var haldinn í dag með Veðurstofu, almannavörnum og Múlaþingi vegna rigninga síðustu daga á Seyðisfirði. Úrkoma er hætt en hún mældist samanlögð 85 mm frá því á sunnudag. Mælingar á speglum í hlíðinni sýna að það herti aðeins á hreyfingunni við úrkomuna eins og við mátti búast. Hreyfingin er sem fyrr eingöngu í hrygg milli stóra skriðusársins frá í desember 2020 og Búðarár.

Mælar hryggsins hafa sýnt nokkuð stöðuga hreyfingu frá 2. október sl. Hún hefur verið mismunandi eftir speglum og eins hafa speglarnir farið í mismunandi áttir. Ekki er talið að hryggurinn sé eitt stykki heldur mörg og líkur því á að hann fari niður í nokkrum brotum og á mismunandi tímum.

Vatnsborð hækkaði lítillega í borholum Veðurstofu meðan á rigningu stóð en óverulega.

Gert er ráð fyrir kólnandi veðri á næstunni og snjókomu.

Sem fyrr mun aukin hreyfing á hryggnum þýða að umferð neðan við skriðufarveginn, á Hafnargötu við Búðará, verði stöðvuð í öryggisskyni. Þá verða húsin fimm næst leiðigörðunum rýmd gefi mælar vísbendingu um að allur hryggurinn fari í einu.

Vel er fylgst með mælum í hlíðum ofan Seyðisfjarðar og viðeigandi ráðstafanir gerðar þyki ástæða til.

Áfram verði aðgæsla vegna umferðar á göngustígum meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum, svo sem á Hafnargötu við Búðará og utan við Múla. 

Enn er í gildi óvissustig almannavarna á Seyðisfirði.

Unnið er að efldri skráningu allra íbúa á b og c svæði. Íbúar á þeim svæðum geta því átt von á að haft verði samband við þá innan skamms. Minnt er á rýmingarspjöld með leiðbeiningum sem dreift var í öll hús á Seyðisfirði í vor og eru íbúar hvattir til að hafa þau til reiðu.

Minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Á vef Veðurstofu Íslands er tilkynningarborði um Seyðisfjörð þar sem hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um vöktun og fleira, skoða staðsetningu svæðisins er um ræðir og hreyfingar á speglum.