5 Júní 2010 12:00

Rannsókn sumarbústaðainnbrota hjá lögreglunni á Selfossi miðar vel og hefur á þriðja tug innbrota verið upplýst flest í Grímsnesi.  Einum sakborninga var sleppt úr gæsluvarðhaldi síðastliðinn fimmtudag og öðrum í gær.  Ekki þótti ástæða til að halda þeim lengur þar sem rannsókn hefur gengið vel.  Þeim elsta í hópnum verður haldið lengur í gæsluvarðhaldi vegna hagsmuna rannsóknarinnar en einangrun hefur verið aflétt.  Yngsti aðilinn hefur alfarið verið undir umsjón barnaverndaryfirvalda.  Í gær, föstudag, aðstoðuðu lögreglumenn í sérsveit Ríkislögreglustjóra við að leita að tveimur stúlkum sem tengdust málinu. Þær fundust á höfuðborgarsvæðinu og voru færðar til yfirheyrslu á Selfossi.  Að lokinni yfirheyrslu voru þær fjrálsar ferða sinna.