8 September 2010 12:00

Göngum í skólann var formlega sett  í morgun í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.  Við setninguna fluttu ávörp þær Rannveig Ásgeirsdóttir sem sæti á í skólanefnd Kópavogsbæjar og Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar.  Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu var einnig viðstaddur ásamt bakhjörlum verkefnisins.  Það voru nemendur úr öðrum og sjöunda bekk í Fossvogsskóla og Snælandsskóla sem hófu að þessu sinni verkefnið Göngum í skólann með því að fara í ratleiki og ganga um svæðið. 

Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Með því hreyfa allir sig meira, minni umferð verður við skólana og ganga um hverfið vekur fólk til vitundar um sitt nánasta umhverfi og öryggi í umferðinni.

                                                          

Ísland er að taka þátt í fjórða sinn í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi.  Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 6. október.

Lögreglan er þátttakandi í þessu verkefni og mun leggja sérstaka áherslu á eftirlit með umferð í nágrenni við skóla þar sem búast má við auknum fjölda barna gangandi til og frá skóla.

Bakhjarlar Göngum í skólann eru Lýðheilsustöð, Umferðarstofa (ásamt móðurskólum í umferðarfræðslu), Ríkislögreglustjóri, Menntamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Heimili og skóli.

Allir grunnskólar í landinu hafa verið hvattir til að taka þátt í Göngum í skólann og skrá skólann til leiks.

Heimasíða verkefnisins er: www.gongumiskolann.is

Myndir teknar við setningu verkefnisins.